top of page

Lausa skrúfan seld á Akureyri

grofin

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar á Vísi:



Lausa skrúfan sem verður til sölu í febrúar
Lausa skrúfan sem verður til sölu í febrúar

„Lausa skrúfan“ er yfirskrift á átaki hjá Grófinni geðrækt á Akureyri, sem hefst í næsta mánuði í þeim tilgangi að tryggja enn frekar starfsemi Grófarinnar, sem er eina opna geðræktin á Norðurlandi.

Grófin verður 12 ára í haust og ætlar að blása í lúðra nú í febrúar með sölu á lausu skrúfunni í litlum kassa, sem inniheldur skrúfu og tappa og miða þar sem hægt verður að nálgast ýmiss konar bjargráð til geðræktar.


Pálína Sigrún Halldórsdóttir iðjuþjálfi er framkvæmdastjóri Grófarinnar.


„Grófin er opinn staður þar sem fólk getur bara komið þegar því hentar, sem er að glíma við einhverjar geðrænar áskoranir eða hefur ekki liðið vel. Hefur lent í atvinnumissi eða einhverju slíku og þarf á stuðningi að halda. Við erum sem sagt ekki meðferðarstaður heldur erum við fyrst og fremst staður þar sem við erum að vinna með jafningjastuðning og við erum með allskonar hluti í boði,” segir Pálína Sigrún.



Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar og iðjuþjálfi
Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar og iðjuþjálfi

Og þið eruð að fara af stað með skemmtilegt verkefni, hvaða verkefni er það?

„Já, það er lausa Skrúfan talandi um að fólk þurfi að vita af því hvað er í boði og ekki síst hvað getur gripið þig um leið og eitthvað bjátar á.Þetta er vitundarvakning og síðan erum við að selja lausu skrúfuna og það verður núna í febrúar. Við völdum febrúar, sem mánuð lausu skrúfunnar,“ segir Pálína Sigrún og bætir við:

„Ég bara vona að fólk taki okkur vel og að fólki veiti þessu athygli og að minnsta kosti, já kíki bara inn á lausaskrufan.is því þar er vefurinn, sem við erum búin að hanna og á honum er alveg fullt af upplýsingum.“


Grófin er með starfsemi sína í Hafnarstræti 97 á 6. Hæð í göngugötunni á Akureyri.
Grófin er með starfsemi sína í Hafnarstræti 97 á 6. Hæð í göngugötunni á Akureyri.



3 views0 comments

Recent Posts

See All

Comments


Grófin Geðrækt 

Hafnarstræti 97, 6. hæð
600, Akureyri 

Sími: 462-3400/8463434

E-mail: grofin@outlook.com

Opnunartímar í Grófinni

Mán-fim: 10:00 - 16:00

Föstudagar: 10:00 - 15:00

  • Facebook
  • Instagram

© 2023 Grófin - Öll réttindi áskilin

 
bottom of page