top of page
Hearts

Sjálfboðavinna

Sem notendastýrð samtök stólum við á að allir leggi hönd á plóg þegar kemur að daglegum rekstri Grófarinnar. Í gegnum tíðina höfum við fengið ómetanlega hjálp frá bæði notendum og utanaðkomandi aðilum og erum við þakklát fyrir alla þá sem hafa styrkt okkur með vinnu sinni. Við erum alltaf að leita að aðilum til að aðstoða okkur við að annast tilfallandi verkefni svo við getum haldið áfram að þróa og rækta starfið og þannig hjálpað sem flestum. Vinnan felur í sér tækifæri til að læra ýmislegt og efla sjálfan sig í leiðinni, og getur í senn verið gefandi og kröfuhörð, ásamt því að við hvetjum einstaklinga til að koma með nýjar hugmyndir og stinga upp á verkefnum sem henta starfseminni okkar. Vinnutímar eru almennt sveigjanlegir en sjálfboðaliðar eru beðnir um að skuldbinda sig upp að vissu marki.

pugvolunteer.JPG

Gleðigjafinn og sjálfboðaliðinn Yoda

Það sem felst í starfinu

Ýmisleg tilfallandi verkefni falla í hendur sjálfboðaliða okkar, meðal annars að taka á móti fólki sem er að koma í fyrsta sinn, svara síma, sjá um eldhúskrókinn og passa að nóg sé af kaffi og því fram eftir götum. Einnig þarf að hjálpa til með þrif á húsinu sem og að leggja saman borð og til að aðlaga aðstöðuna að þeim fundi sem er í gangi að hverju sinni og halda utan um gestabók. Þetta er í rauninni ótrúlega fjölbreytt starf, allt frá því að hella upp á kaffi og fara út með ruslið í að finna sönglög fyrir söngstundir, og aðstoða fólk við að finna sér verkefni ásamt því að veita stuðning og spjall. Hafi fólki áhuga veitum við því tækifæri til að stjórna hópum eða koma með hugmyndir að nýjum dagskrárliðum. Að sjálfsögðu er svo í boði að taka þátt í starfinu!

Við krefjumst þess af öllum sem taka þátt í starfseminni á einhvern hátt að þau haldi trúnað og sýni bæði fólki og félaginu virðingu. Einstaklingar þurfa að vera sveigjanlegir og geta sýnt sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði. 

Ef þú hefur áhuga á því að ganga til liðs við okkur, sendu okkur póst á grofin@outlook.com

bottom of page