Fólkið í Grófinni/The people of Grófin
Hópstjórar í Grófinni
Efri mynd til vinsti: Richard og Anseok
Efri mynd til hægri: Vilborg og Margrét
Neðri mynd: María, Sigurður og Ingólfur
Grófin er full af fólki sem hafa tekið að sér hin ýmsu verkefni og sjálfboðaliðastörf. Hér eru þeir hópstjórar sem hafa verið í sjálfboðavinnu hjá okkur undanfarið. Við erum óendanlega glöð með það hversu frábært fólk er í okkar röðum og hversu dugleg þau eru að skapa sín eigin tækifæri til sjálfseflingar, m.a. með því að taka að sér hópastjórnun í tilbúnum hópum eða búa til nýja hópa. Auðvitað eru svo fleiri sjálfboðaliðar bak við tjöldin, en þar má t.d. nefna stjórnina okkar sem hægt er að lesa um á heimsíðunni.
Vilborg og Margrét sjá um Virknihornið okkar á mánudögum og fimmtudögum þar sem þær taka að sér að leiðbeina með ýmis konar handverk og koma með hugmyndir að verkefnum fyrir þátttakendur. Margrét segir m.a. að hún hafi mikla ánægju af því að vera hópstjóri í Grófinni og að það gefi henni mikið.
Richard og Anseok sjá svo um English talk circle, umhyggjuhóp fyrir enskumælandi Grófarfélaga, en þeir hafa báðir verið í Grófinni í mörg ár. Richard hefur þetta að segja um upplifun sína af sjálfboðaliðastarfinu í Grófinni:
"Ég er sjálfboðaliði í Grófinni af því að mér finnst mikilvægt að fólk hafi öruggt umhverfi þar sem þau geta talað um hvað sem er, hvort sem það sé jákvætt eða neikvætt. Ég hef séð hvernig það að tilheyra góðu samfélagi fólks með svipað hugarfar getur verið hjálplegt í bataferlinu, að mér meðtöldum, og vil vera viss um að það sé til fyrir fólk sem glímir við erfiðleika."
Sömuleiðis segir Anseok: "Ég vona að hópurinn veiti stuðning og gott umhverfi fyrir útlendinga eins og mig sem eru ekki enn með fullt vald á Íslensku."
María Logn og Sigurður Gísli hafa verið ötul við að taka að sér hópstjórn í hinum ýmsu hópum, en m.a. hefur tók María að sér að vera með alls kyns fræðslu í Geðræktinni undanfarið misseri og Sigurður hefur oft tekið að sér umhyggjuhóp og jafningjaspjall. Ingólfur byrjaði svo nýlega með dagskrárlið sem heitir Dans fyrir alla, þar sem þátttakendur læra einfaldar dansrútínur og hita upp líkamann.
"Eitt af því sem ég fíla við Grófarstarfið er að geta unnið í bættri geðheilsu og sjálfstyrkingu með öðrum sem vilja gera það sama sem jafningjar, ekki sem sjúklingar. Svo er kaffið hérna líka gott!" Segir María. Ingólfur segir Grófina hjálpa sér við að halda rútínu.
Group facilitators in Grófin
Grófin is full of people who have taken on various projects and volunteer work. Here are the group leaders who have been volunteering with us recently. We are incredibly happy with how great people are in our ranks and how diligent they are in creating their own opportunities for self-empowerment, including by taking on group management in pre-existing groups or creating new groups. Of course, there are more volunteers behind the scenes, such as our board, which you can read about on the website.
Vilborg and Margrét take care of our Activity Corner (Virknihorn) on Mondays and Thursdays, where they take on the task of guiding with various crafts and coming up with ideas for projects for participants. Margrét says, among other things, that she enjoys being a group leader in Grófin and that it is very rewarding.
Richard and Anseok facilitate the English talk circle, a support group for English-speaking members of Grófin, and they have both been participants at Grófin for many years. Richard has this to say about his experience of volunteering at Grófin:
"I volunteer for Grófin because I think it's important for people to have a safe space where they can talk about whatever is on their mind, no matter if it is positive or negative. I have seen how having a good community of people with similar mindsets can help people on their road of recovery, including myself, and want to make sure that such a place is available for people that have difficulties. ."
Similarly, Anseok says: "I hope that the group provides support and a good environment for foreigners like me who are not yet fully fluent in Icelandic."
María Logn and Sigurður Gísli have been active in taking on group facilitating in the various groups, but among other things, María has taken on all kinds of roles in Geðræktin (one of our mental health groups) recently, and Sigurður has often taken on Umhyggjuhópur and Jafningjaspjall. Ingólfur recently started a program called Dans fyrir alla (Dance for Everyone), where participants learn simple dance routines and warm up their bodies.
"One of the things I like about volunteering at Grófin is being able to work on improving mental health and self-empowerment with others who want to do the same as peers, not as patients. And the coffee here is good too!" says María. Ingólfur says Grófina helps him keep a routine.
