Hópastarf

Fjölbreytt hópastarf er í Grófinni og erum við alltaf að leita af góðum hugmyndum. Lagt er upp úr því að allir Grófarfélagar hafi tækifæri til að nýta sér hópana til sjálfseflingar og geðræktar. Allir hóparnir eru opnir nema annað sé sérstaklega tekið fram á dagskránni.

Tveir hópar Grófarinnar hafa verið óbreyttir frá upphafi: Umhyggjuhópur, þar sem einstaklingar fá tækifæri til þess að tjá sig um daginn og veginn, hvernig gengur og hvað má betur fara án þess að þurfa fá eða deila ráðum, og svo Kjarnafundir. Þeir eru húsfundir þar sem þátttakendum Grófarinnar gefst færi á að ræða um málefni sem snúa að innra starfinu okkar og koma með hugmyndir um dagskrárliði, viðburði og fleira.

Mikilvægt er að raddir allra fái að heyrast. Þó fundirnir fjalli um ólík málefni eiga þeir það allir sameiginlegt að þjálfa fólk í að tjá sig og veita fólki frelsi til þess að tjá sig.

Sjá má dagskrá til að komast að því hvenær fundirnir eru.

Afhverju hópastarf?

Hópastarf getur haft margvísleg jákvæð og heilandi áhrif fyrir þátttakendurnar. Meðal annars læra meðlimir félagsleg samskipti. Hópastarf gerir þátttakendum kleift að fá tilfinningalegan stuðning og hefur félagsleg tenging góð áhrif á heilsu og velferð. Það er mikilvægt að þau sem taka þátt fái að upplifa að þau geti haft áhrif og hjálpað öðrum á sama tíma og þau fá hjálp sjálf. Þannig verða hóparnir að vettvangi fyrir gagnkvæma aðstoð. Að vera í hóp með öðrum sem hafa svipuð markmið um að ná bata veitir einstaklingnum tækifæri til að læra nýja hegðun og læra á sjálfan sig, en getur einnig veitt honum von.

Jafningjastuðningshópar ganga út frá grundvallarforsendum notendamiðaðrar þjónustu (e. person centred) og inniheldur hún meðal annars skilyrðislausa viðurkenningu, traust, samkennd, virðingu, samvinnu og val. Hægt er að lesa frekar um jafningjanálgun á síðunni.

Hvernig hópastarf?

Í Grófinni eru þrjár tegundir hópa: spjallhópar, formfastir hópar og virknihópar.

Spjallhópar eru mest megnis óformlegir umræðuhópar þar sem einstaklingar fá að tjá sig frjálslega og það er ekki endilega neitt sérstakt þema sem þeim fylgir. Tilgangur þessara hópa felst meðal annars í því að þjálfa samskiptafærni.

Formfastir hópar eru einnig oft umræðuhópar en stundum eru lögð fyrir verkefni. Hóparnir eru formfastir á þann hátt að alltaf er byrjað á því að lesa upp inngang sem inniheldur reglur og tilgang hópsins, og hafa fyrirfram ákveðið fundarform. Dæmi um formfastan hóp er til dæmis Geðræktin þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Grófarinnar, valdeflingu og batamódeli.

Virknihópar snúast um að efla virkni einstaklinga og jafnvel fara aðeins út fyrir rammann. Þeir hafa ekki fast form en hafa lýsingu á verkefnum hverju sinni. Í þessu felst meðal annars Virknihornið okkar þar sem fram fer ýmis handa vinna, sem og viðburðir Unghuga.