Grófin flytur

Nú um mánaðarmótin mars-apríl ætlum við að flytja í nýtt húsnæði að Glerárgötu 24, 4.hæð. Frá og með deginum í dag er því engin formleg dagskrá í Grófinni en fólki auðvitað frjálst að koma við í kaffi. Við munum nýta þessa daga til þess að pakka niður dóti, grisja og græja. Því miður er ekki enn vitað hvenær dagskrá hefst á ný – við munum auglýsa það þegar það liggur fyrir. Þökkum skilninginn og stuðninginn og hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað!

Next
Next

Lausa skrúfan 2026