Úrslit liggja fyrir í nafnasamkeppni

Í sumar stóð yfir samkeppni þar sem þátttakendur í Grófinni Geðrækt völdu nöfn fyrir hin ýmsu herbergi í húsinu.

Samkeppnin fór af stað á opnu húsi í byrjun maí, en þar voru viðstaddir hvattir til að skrifa inná teikningu af nýja húsnæði Grófarinnar hugmyndir sínar af skemmtilegum nöfnum fyrir öll helstu rýmin. Tillögurnar voru teknar saman og útfrá þeim var kosið um nafn á hverju herbergi fyrir sig. Kosningar fóru fram á Facebook hópnum “Grófarfélagar” (lokaður hópur fyrir þátttakendur í Grófinni) og stóðu þær yfir í allt sumar, enda um átta rými að ræða og aðeins kosið um eitt í einu.

Margar frumlegar og skemmtilegar hugmyndir voru lagðar til og gat verið ansi strembið að gera uppá milli þeirra.

Úrslitin voru kynnt í afmæli Grófarinnar 10. október og allir hugmyndasmiðir af vinningsnöfnum hlutu gjafabréf í Ísbúð Akureyrar í verðlaun.

Sjón er sögu ríkari, þannig að hér að neðan má sjá myndir af herbergjunum ásamt nöfnum þeirra.

Next
Next

Hver grípur þig?