Hver grípur þig?
Gulur september er tileinkaður vitundarvakningu um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.
Í tilefni af Gulum september tók fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og buðu til notalegrar samverustundar í Kjarnaskógi á dögunum.
Markmið viðburðarins var að skapa rými til að staldra við og eiga notalega stund saman. Um leið vildum við vekja athygli á fjölbreyttri og gjaldfrjálsri þjónustu sem stendur fólki til boða hér á Akureyri og nágrenni þegar á reynir. Veistu hvert þú getur leitað þegar þú þarft á stuðningi að halda?
Að viðburðinum stóðu Aflið, Bergið Headspace, Bjarmahlíð, Frú Ragnheiður, Gley Mér Ei, Grófin Geðrækt, Hjálp 48, KAON, Kvennaathvarfið, Píeta og Sorgarmiðstöð, sem öll bjóða upp á gjaldfrjálsa þjónustu á Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa Skógræktarfélagi Eyfirðinga, Sjálfsrækt og Sindra Geir sem lögðu öll sitt af mörkum við viðburðarhöldin.
Einnig viljum við þakka öllum sem komu og nutu með okkur.
Hér er hægt að lesa um úrræði sem í boði eru á Norðurlandi.
