Sumarið í Grófinni

Nú er sumarið farið að taka við vorinu og snjórinn (vonandi) kominn í frí. Í maí var haldinn dagskrárgerðarfundur þar sem Grófarfélagar komu saman til að ákveða dagskrána í sumar og taka ákvarðanir varðandi opnunartíma.

Dagskráin var einfölduð þar sem starfshópurinn verður fámennur í sumar, en ákveðið var að hafa enga sérstaka sumarlokun. Frá og með 1. júní verður opið í Grófinni frá 10-14:30 alla daga. Í júlí verður svo lokað á föstudögum en annars opið. Mönnunin samanstendur af starfsfólki og sjálfboðaliðum sem munu halda úti hópa og passa að það sé heitt á könnunni.

Eins og sjá má á dagskránni kemur einn nýr dagskrárliður inn, og þó nokkrir detta út. Á mánudögum verðum við saman í útiveru, og var svo ákvörðun tekin að börn eru velkomin í fylgd með fullorðnum, en þar er planið að fara í alls kyns útileiki ef veður leyfir. Búast má við að við munum nýta okkur Eiðsvöllinn töluvert undir þann hóp.


Sjáumst í Grófinni í sumar!

Next
Next

Takk Oddfellow!