Sportver styrkir starfsemi Grófarinnar

Inga Bryndís tekur á móti gjöfinni frá Sveini Þórði Þórðarsyni

Grófin fékk á dögunum rausnarlegan styrk frá Sportveri í formi fjölbreytts búnaðar sem mun nýtast afar vel í starfseminni okkar.

Meðal þess sem Sportver gaf okkur voru jógadýnur, nálastungudýna, jógakubbar, folfdiskar, æfingateygjur og annar búnaður sem styður við hreyfingu, slökun og almenna vellíðan þátttakenda. Inga María tók á móti styrknum frá Sveini Þórði Þórðarsyni, verslunarstjóra Sporvers.

Þetta hentar einstaklega vel þar sem nýlega bættust við tveir nýjir dagskrárliðir sem styðja beint við líkamlega heilsu, en það er Bandvefslosun og Frisbígolf. Það má lesa frekar um þá dagskrárliði hér.

Við erum ótrúlega þakklát fyrir þennan góða stuðning. Samfélagið í kringum okkur gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi Grófarinnar og styrkir á borð við þennan gera okkur kleift að bjóða upp á enn fjölbreyttari leiðir til geðræktar og bata.

Kærar þakkir til Sporvers og Sveins Þórðar fyrir gjafmildina og hlýhug í okkar garð!

Next
Next

Sumarið í Grófinni